Öruggasta og einfaldasta leiðin til að sækja Tor-vafrann er af opinberri vefsíðu Tor-verkefnisins á https://www.torproject.org/download. Tengingin við síðuna er tryggð með HTTPS, sem gerir utanaðkomandi aðilum erfiðara fyrir með að eiga við niðurhalið.

Hinsvegar, það geta komið upp tilvik þar sem þú hefur ekki aðgang að vefsvæði Tor-verkefnisins: til dæmis gæti það verið útilokað á netkerfinu þar sem þú tengist. Ef sú er raunin, gætirðu prófað einhverjar af þeim varaleiðum til niðurhals sem taldar eru upp hér fyrir neðan:

SPEGLAR

Ef þér tekst ekki að sækja Tor-vafrann af opinberri heimasíðu Tor-verkefnisins, þá geturðu reynt að sækja hann af einum af opinberu hugbúnaðarspeglunum okkar, annað hvort í gegnum EFF eða Calyx Institute.

GetTor

GetTor er þjónusta sem bregst sjálfvirkt við skilaboðum með því að senda tengla á nýjustu útgáfur Tor-vafrans, hýstar á ýmsum mismunandi stöðum, svo sem Dropbox, Google Drive og GitHub.

AÐ NOTA GETTOR MEÐ TÖLVUPÓSTI

Sendu tölvupóst til gettor@torproject.org og skrifaðu einfaldlega í meginmál póstsins “windows”, “osx”, eða “linux”, (án gæsalappanna) eftir því hvert stýrikerfið þitt er. Til dæmis, til að fá tengla fyrir niðurhal Tor-vafrans fyrir Windows, sendu tölvupóst til gettor@torproject.org með orðinu "windows" í skilaboðunum.

GetTor mun svara með tölvupósti sem inniheldur tengla sem beina á niðurhalspakka Tor-vafrans, á undirritun dulritunarinnar (nauðsynlegt til að geta sannreynt niðurhalið), fingrafar dulritunarlykilsins sem notaður var við gerð undirritunarinnar, og á gátsummu pakkans (checksum). Þér gæti verið boðið að velja á milli “32-bita” eða “64-bita” hugbúnaðar: það fer eftir hvaða gerð af tölvu þú ert að nota.

AÐ NOTA GETTOR MEÐ TELEGRAM

Sendu skilaboð til @GetTor_Bot á Telegram.

  • Ýttu á 'Byrja/Start' eða skrifaðu /start í spjallinu.

  • Veldu tungumálið þitt.

  • Það eru tvær leiðir til að sækja Tor-vafrann.

    • Ýttu á 'Senda mér Tor-vafrann' og veldu stýrikerfið þitt. GetTor mun svara með niðurhalanlegri skrá Tor-vafrans auk undirritunarinnar sem hægt er að nota til að sannreyna niðurhalið.
    • Ýttu á 'Senda mér aðra hugbúnaðarspegla fyrirTor-vafrann' til að sækja hugbúnaðinn af einum af opinberu hugbúnaðarspeglunum.

GetTor vélmennið