Tor-vafrinn notar Tor-netið til að vernda persónuupplýsingar þínar og halda þér nafnlausum. Notkun Tor-netsins gefur tvenns konar eiginleika:
Netþjónustuaðilinn þinn (ISP), og hver sá sem væri að fylgjast með umferðinni þinni á staðarnetinu, munu ekki geta fylgst með því sem þú ert að gera á internetinu, þar með talin eru nöfn og vistföng vefsvæða sem þú heimsækir.
Þeir sem reka vefsvæðin og þjónusturnar sem þú notar, auk þeirra sem væru að fylgjast með þeim, munu sjá tengingu sem kemur frá Tor-netinu í staðinn fyrir að sjá raunverulegt IP-vistfang þitt, og munu því ekki vita hver þú ert nema að þú auðkennir þig sérstaklega.
Að auki er Tor-vafrinn hannaður til að hindra vefsvæði í að "taka fingraför" eða að auðkenna þig út frá uppsetningu vafrans.
Sjálfgefið geymir Tor-vafrinn ekki neinn vafurferil. Vefkökur eru einungis gildar í stökum setum (þar til hætt er í Tor-vafranum eða beðið um Nýtt auðkenni).
HVERNIG TOR VIRKAR
Tor er net af sýndargöngum (virtual tunnels) sem gera þér kleift að bæta friðhelgi þína og öryggi á internetinu. Tor virkar þannig að umferðin þín er send í gegnum þrjá handahófsvalda þjóna (einnig nefndir endurvarpar) í Tor-netkerfinu. Síðasti endurvarpinn í rásinni (nefndur “úttaksendurvarpi”) sendir þá umferðina út á opinbera internetið.
The image above illustrates a user browsing a website over Tor where the traffic goes over multiple hops or relays, represented by the slices of onion, and is encrypted and decrypted at each hop.